Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 631/2022 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 631/2021

Fimmtudaginn 17. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2021, um að synja beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 29. september 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 18. október 2021 og óskaði eftir því að umsóknin tæki gildi frá og með 29. september 2021. Með ákvörðun, dags. 15. nóvember 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 100%. Kæranda var jafnframt tilkynnt að beiðni hans um að umsóknin tæki gildi 29. september 2021 væri synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 22. desember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 15. febrúar 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að honum þyki ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja honum um bætur frá 29. september 2021 er hann hafi lagt inn fyrri umsókn sína, sem hafi verið eytt 15 dögum síðar, verulega óréttlát. Kærandi hafi ekki kunnað á kerfið, enda ekki lagt í vana sinn að þiggja bætur frá hinu opinbera. Starfsmaður Vinnumálastofnunar hafi sagt kæranda að hafa ekki áhyggjur af því að hafa gleymt því að leggja fram fylgigögn, það yrði horft til þess að hann hefði ekki vitað betur. Það komi alveg skýrt fram á fylgiskjali Ríkisskattstjóra að hann hafi síðast fengið greidd laun fyrir ágúst og því óski kærandi eftir endurskoðun ákvörðunarinnar. Kærandi hafi alla sína ævi verið launamaður og borgað skatta og skyldur í alla sjóði síðastliðin 30 ár. Því telji kærandi að hann hafi áunnið sér þau réttindi að mega gera ein augljós mistök sem vonandi verði hægt að leiðrétta.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi haft samband við stofnunina þann 14. október 2021 vegna umsóknar um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi verið tjáð að hann ætti enga umsókn í kerfum stofnunarinnar, en hann hafi sjálfur sagst hafa hafa sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 29. september 2021. Samkvæmt upplýsingum úr tölvukerfi stofnunarinnar hafi kærandi byrjað umsóknarferli þann 29. september en hvorki lokið við umsókn sína né sent hana til stofnunarinnar. Þar sem kærandi hafi ekki klárað umsókn sína hafi henni verið eytt úr kerfum stofnunarinnar þann 14. október 2021. Kærandi hafi sagst ætla að sækja um aftur og hafi óskað eftir því að umsókn hans tæki gildi frá og með 29. september 2021. Kærandi hafi fengið aðstoð hjá starfsmanni Vinnumálastofnunar við að fylla út umsókn sína og þann 18. október 2021 hafi Vinnumálastofnun borist umsókn kæranda um atvinnuleysistryggingar. Með erindi, dags. 15. nóvember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans væri samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Beiðni hans þess efnis að umsóknin tæki gildi frá og með 29. september 2021 hafi verið hafnað. Í kæru greini kærandi frá því að kerfi stofnunarinnar hafi ekki verið honum kunnugt. Hann hafi gert augljós mistök og óski eftir því að þau mistök verði leiðrétt og að umsókn hans taki gildi frá og með 29. september 2021.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í 1. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í [30 mánuði] frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Eðli máls samkvæmt sé það grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt með umsókn til Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur aftur fyrir umsókn atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Sú framkvæmd hafi verið ítrekað staðfest með úrskurðum úrskurðarnefndar velferðarmála. Ljóst sé að Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 18. október 2021 og því eigi hann ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna séu fortakslaus að þessu leyti, sbr. til dæmis fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020. Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi eigi rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga frá 18. október 2021 og að hafna beri beiðni kæranda um afturvirkar greiðslur atvinnuleysistrygginga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 29. september 2021.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Kærandi opnaði umsókn um atvinnuleysisbætur þann 29. september 2021 en lauk ekki við gerð hennar og sendi stofnuninni því ekki umsóknina. Kæranda varð þetta ljóst 14. október 2021 þegar hann hafði samband við Vinnumálastofnun og gerði þá nýja umsókn sem hann sendi inn til stofnunarinnar 18. október 2021. Því er ljóst að Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 18. október 2021 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2021, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 29. september 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum